Börn í 100 ár – saga Íslands á 20. öld
Árið 1908 var fyrst stofnaður barnaskóli í Borgarfirði, þar sem nú er Grunnskólinn í Borgarnesi. Á afmælisárinu 2008 var opnuð í Borgarnesi sýning um líf barna á Íslandi árunum 1908 til 2008.
Á sýningunni er lögð áhersla á ljósmyndir og þær settar í skemmtilegt samhengi við muni liðins tíma. Þannig má sjá sögu þjóðarinnar á 20. öld út frá sjónarhóli og umhverfi barna á þessum tíma.
Sýningin er þannig sett upp að það er eins og gestir gangi inn í risavaxið myndaalbúm, þar sem hægt er að opna veggina eins og jóladagatal.
Sýningin er opin á sumrin (1. júní - 1. september) alla daga frá 13-18 og á veturna eftir samkomulagi.
Hún hentar jafnt fyrir börn sem fullorðna og jafnt fyrir Íslendinga sem erlenda ferðamenn. Bæklingar liggja frammi á íslensku og ensku.
Óskað er eftir að látið sé vita sérstaklega af komu hópa svo nægilega sé mannað til móttöku.
Safnahús Borgarfjarðar er staðsett við Bjarnarbraut 4-6 í Borgarnesi, í nágrenni Landnámsseturs. Sjá kort hér.
Aðgengi að sýningunni er afar gott, gengið er inn á jarðhæð og hjólastólar komast vel um svo dæmi sé tekið.
Aðgangseyrir er kr. 600 fyrir fullorðna, en ókeypis fyrir börn allt að 16 ára aldri. Eldri borgarar, námsmenn og öryrkjar: 400 kr. Hópar (10 eða fleiri) greiða 300 kr. á mann á venjulegum opnunartíma. Þurfi að opna safnið sérstaklega greiða hópar 500 kr á mann.
Sími: 430 7200, netfang: safnahus@safnahus.is
Meðfylgjandi ljósmynd er af stúlku (Maríu Hildi Maack) í íslenskri sveit snemma á 7. áratug síðustu aldar og er þetta einkennismynd sýningarinnar. Birt með góðfúslegu leyfi ljósmyndara, Rafns Hafnfjörð.
|